Ljóð og Pælingar

Stolið af Facebook 

Stúlka spyr föður sinn:
Var ég búin til í glasi, ættleidd eða rídd
úr hvaða efni er ég smídd
af íslensku holdi eða þýdd
Ég vita það vil, því víst er ég til
er ég ættleidd, úr glasi eða rídd?

Svar föðurs:
Úr ágætisefni ertu snídd
og kostunum bestu ertu prídd
en, eitt máttu vita
ég vann mér til hita
því á gamaldags hátt ertu rídd!! ;)



Facebook dæmi

Hér er frost og funi
Hér er voða kalt
Yfir evrópu hefur dunið
Íslensk jóladagatal



Bull-lag okkar barnanna
Aftur og aftur
sagði litla hænan
sem fór út í búð
og keypti sér einn
lítinn rafmagnssnúð - sssssssss



Ljóð mitt til Ingu

Hvernig væri mín veröld án vina

Hvernig væri mín lífslanga leið

Hvernig færi ég að því að lifa

Lifa án þín ég sé ekki leið

því þú ert mín lífslanga lína

vinur og félagi og allt í senn

tel ég mig heppin að eiga og lifa

með þér í hlaupi um lífslanga leið.


Þetta ljóð fann ég rétt fyrir brúðkaupið okkar

                      

Ferðalagið

Blómum prýðist græna grundin,

glampar sólin yndisleg

Loks er komin stóra stundin,

stefnir flest á betri veg.

Ævistíginn áfram fetum,

leysum við nú hverja þraut.

Vonandi í gleði getum,

gengið saman rétta braut

 

Þess ég óska að veginn vísi,

virðing, ást og þráin heit

Ætíð skæra ljósið lýsi,

leiki happ um sælureit.

Saman getum glaðst og hlegið,

gengið móts við bjartan dag.

Staðið vörð um okkar eigið,

yndislega ferðalag.

 

Áfram þannig ævin líði,

aldrei dofni hjartans glóð.

Gæfan okkar barna bíði,

birta falli á þeirra slóð.

Svörum ástar kæra kalli,

kætist veröld unaðsblíð.

Undir fögru Esjufjalli,

farsæld ríki alla tíð.

Flettingar í dag: 8
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 16
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 48476
Samtals gestir: 13681
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:42:43